Hoppa yfir valmynd
Kærunefnd útlendingamála

Nr. 178/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 20. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 178/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24010093

 

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli […] og barna

 

Málsatvik

Hinn 18. janúar 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. október 2023, um að synja […], fd. […], ríkisborgara Venesúela og Sýrlands, börnum hans, […], fd. [...], og […], fd. […], um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 19. janúar 2024 og 26. janúar 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 2. febrúar 2024 barst kærunefnd greinargerð aðila.

Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Aðili byggir beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að úrskurðurinn líti að mjög ungum börnum sem hafa ekki búið í Venesúela í nokkur ár, móðir þeirra sé búsett í Sýrlandi og þeim sé gert að snúa til Venesúela. Mikilvægt sé að þau geti verið á Íslandi á meðan mál þeirra sé rekið fyrir dómstólum. Þá sé um að ræða eitt fyrsta málið þar sem kærunefnd úrskurðar í máli barnafólks sem er með bakgrunn frá Venesúela og Sýrlandi.

Aðili telur brýnt að dómstólar fái tækifæri til að fjalla um aðstæður þeirra þar sem mál þeirra hafi ekki verið fullrannsakað hvorki á æðra né lægra stjórnsýslustigi og aðili telur að ýmsum spurningum sé ósvarað einkum varðandi efnisreglur stjórnsýsluréttarins. Málið kunni að hafa fordæmisgildi varðandi önnur sambærileg mál, þ.e. einkum varðandi samspil efnisreglna stjórnsýsluréttar við breytta stjórnsýsluframkvæmd á sviði flóttamannaréttar og hvenær breytt stjórnsýsluframkvæmd á sviði flóttamannaréttar geti tekið gildi.

Þá reifar aðili helstu málsástæður sem hann hyggst leggja fram fyrir dómstólum og áskilur sér rétt til að koma að frekari skýringum og sjónarmiðum.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu hans að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að hann skuli yfirgefa landið takmarki möguleika hans til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem hann höfðar til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hefur aðili möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt hann sé ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Þá er kærandi ríkisborgari Venesúela og þarf því ekki vegabréfsáritun til þess að ferðast til Íslands.  Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði hans fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem honum eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsókn hans og barna hans. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Í samræmi við framangreint er það jafnframt mat kærunefndar að aðili eigi ekki á hættu að verða fyrir óafturkræfum skaða snúi hann aftur til heimaríkis.

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í máli aðila. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðila til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli hans.


 

Úrskurðarorð:

 

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum