Nr. 036, 3. maí 2001 Málþing í tilefni 50 ára afmælis varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna
FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu
________
Nr. 036
Í tilefni 50 ára afmælis varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna efnir utanríkisráðuneytið til málþings undir yfirskriftinni "Ísland og öryggi á Norður-Atlantshafi í fortíð, nútíð og framtíð".
Í tengslum við málþingið hefur verið sett upp ljósmyndasýning um varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna í hálfa öld. Jafnframt verður sýnd kvikmynd um komu varnarliðsins til Íslands árið 1951.
Dagskrá málþingsins er hjálögð til fróðleiks.
![](/media/utanrikisraduneyti-media/media/embedded/wpp0320/0.12CE.gif)
Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 3. mai 2001.