Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2024 Forsætisráðuneytið

Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika

Arnór Sighvatsson - mynd

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur sett Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika frá 1. maí 2024 og mun hann gegna stöðunni þar til skipað verður í embættið.

Arnór Sighvatsson er hagfræðingur og býr að áratuga starfsreynslu í Seðlabankanum. Hann var aðalhagfræðingur Seðlabankans 2004-2009 og aðstoðarseðlabankastjóri 2009-2018. Arnór sat þá jafnframt í peningastefnunefnd auk þess að sitja í stjórn Fjármálaeftirlitsins á árunum 2011-2019. Arnór tekur nú sem varaseðlabankastjóri sæti í peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd.

Gunnar Jakobsson, sem gegnt hefur embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika frá 1. mars 2020, lætur að eigin ósk af störfum frá og með 1. maí 2024. Gunnar hafði áður beðist lausnar úr embætti frá 30. júní nk.

Embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika var auglýst laust til umsóknar 9. apríl sl. Forsætisráðherra skipar, samkvæmt lögum um Seðlabanka Íslands nr. 92/2019, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára, á grundvelli niðurstöðu lögbundinnar hæfnisnefndar og að fenginni tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum