Námsgagnasjóður. Stjórn 2024-2028.
Stjórn námsgagnasjóðs er skipuð sbr. ákvæði 6. gr. laga nr. 71/2007 um námsgögn. Hlutverk stjórnarinnar er að ákveða skiptingu fjármuna milli grunnskóla til námsgagnakaupa á grundvelli upplýsinga frá Hagstofu Íslands um fjölda skráðra nemenda í hverjum grunnskóla á síðastliðnu skólaári. Stjórnin hefur eftirlit með því að farið sé að úthlutunarreglum, sbr. 4. gr. reglugerðar um námsgagnasjóð nr. 1111/2007.
Stjórnin er þannig skipuð:
Aðalmenn:
- Sonja Dögg Pálsdóttir, formaður, án tilnefningar
- Þorsteinn Sæberg Sigurðsson, samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands
- Sigríður Hulda Jónsdóttir, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
Varamenn:
- Elisabeth Patriarca Kruger, án tilnefningar
- Anna Guðrún Jóhannesdóttir, samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands
Skipunin gildir frá 2. mars 2024 til 1. mars 2028.