Fagráð Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn
Skipað 28. nóvember 2022.
Ráðið er skipað skv. 4. gr. reglugerðar nr. 664/2012 um Náttúrurannsóknastöðina við Mývatn o.fl., ásamt síðari breytingu, sem sett er á grundvelli 7. og 8. gr. laga nr. 97/2004 um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu. Fagráðið er skipað til fimm ára í senn samkvæmt tilnefningum frá Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Veiðimálastofnun og forstöðumanni Náttúrurannsóknastöðvarinnar, en sá aðili skal þó starfa utan rannsóknastöðvarinnar. Að auki skal fulltrúi sveitarfélaga á svæðinu eiga sæti í fagráðinu.
Fagráðið skal vera forstöðumanni Náttúrurannsóknastöðvarinnar til ráðgjafar um vísindastarf stofnunarinnar, rannsóknastefnu, upplýsingagjöf til heimamanna og almennings og fagleg tengsl við aðrar stofnanir sem stunda rannsóknir á vatnasviði Mývatns og Laxár í samræmi við lög. Fagráðið skiptir með sér verkum. Forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar boðar ráðið til funda eftir því sem þurfa þykir, eigi sjaldnar er árlega, og situr fundi þess.
Samkvæmt tilnefningu Háskóla Íslands
Gísli Már Gíslason
Samkvæmt tilnefningu Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn
Erla Björk Örnólfsdóttir
Samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunar
Eydís Salome Eiríksdóttir
Samkvæmt tilnefningu Náttúrufræðistofnunar Íslands
Ólafur Karl Nielsen
Samkvæmt sameiginlegri tilnefningu Norðurþings og Þingeyjarsveitar
Arnheiður Rán Almarsdóttir